Almennir skilmálar
1. Almennt
Aðgangur og notkun netverslunarinnar á www.johntailor.is (netverslun) er háð eftirfarandi skilmálum. Ef þú ferð á vefsíðuna, skoðar eða leggur fram pöntun samþykkir þú þessa skilmála.
Þessi vefsíða er í eigu og rekin af JT Partners ehf., kt. 560819-1020, Svötutjörn 11, 260 Reykjanesbæ, VSK númer er 135881. JT Partners er samstarfsaðili John Tailor á Íslandi. Vefverslunin er rekin með leyfi og undir merkjum John Tailor.
Í netversluninni er að finna vörur, þ.m.t. fatnað sem ekki telst sérframleiddur eða sérsaumaður fyrir viðskiptavini og gilda skilmálar þessir eingöngu um þær söluvörur sem finna má á netversluninni hverju sinni. Aðrir skilmálar gilda um sérframleiddar eða sérsaumaðar vörur frá John Tailor og eru kynntir sérstaklega gagnvart viðskiptavinum hans.
Öll sala á www.johntailor.is er á ábyrgð JT Partners. Pantanir sem gerðar eru á netversluninni eru John Tailor óviðkomandi og samningssamband viðskiptavinar er eingöngu við JT Partners.
JT Partners áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við vefsíðuna og skilmála þessa án sérstakra tilkynninga. Skilmálarnir sem eru í gildi þegar pöntun er gerð, gilda um viðkomandi pöntun, með öllum þeim breytingum og viðaukum sem kunna að hafa verið gerðir á þeim.
2. Kaupskilmálar
JT Partners samþykkir aðeins pantanir sem gerðar eru af vefsíðu fyrirtækisins. Ekki er hægt að taka á móti pöntunum í síma, tölvupósti eða með bréfapósti.
Til að leggja fram pöntun á vefsvæðinu verður þú að vera 18 ára, búsett/ur á Íslandi og/eða með íslenskt heimilisfang. Þú gefur upp afhendingar- og tengiliðsupplýsingar (eins og tölvupóstfang og farsímanúmer). Þetta má gera annaðhvort á innkaupahluta síðunnar eða með því að skrá þig á „Mínar síður“ á vefsíðunni.
Vörur sem eru settar í innkaupakörfuna eru ekki fráteknar fyrr en pöntunin er staðfest af JT Partners með pöntunarstaðfestingu sem er send á netfangið þitt eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna. Þegar pöntunarstaðfesting hefur verið send er kominn á bindandi samningur um kaup á vörunni. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag kl. 18:00.
Verð eru sýnt í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er með virðisaukaskatti. Verð getur breyst og tilboð má afturkalla hvenær sem er. Uppgefið verð við pöntun gildir um allt kaupferlið. Greiða má fyrir vörur í vefverslun með kredit-/debetkorti.
Sendingarkostnaður leggst á hverja pöntun sé heildarfjárhæð pöntunar lægri en 10.000 kr. en sendingarkostnaður fellur niður fyrir vegna pantana sé heildarfjárhæð hærri en 10.000 kr.
Þegar greiðsla er framkvæmd með kredit- eða debetkorti (VISA, Mastercard eða Maestro) er greiðslan skuldfærð þegar í stað og heimild fæst.
Allar greiðslur sem eru gerðar með kredit- eða debetkorti eru gerðar með öruggum greiðsluþjónustuveitanda (PSP) sem notar SSL (Secure Sockets Layer) í dulkóðuðu formi sem veitir viðskiptavinum öryggi í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðal PCI DSS .
Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til JT Partners, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. JT Partners ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimild.
Hægt er að greiða með innsendri greiðslukröfu í netversluninni. Þegar greiðsla hefur verið innt af hendi og staðfesting borist JT Partners verður staðfestingarpóstur sendur til þín og þar með eru viðskiptin staðfest.
3. Afhending
JT Partners afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er.
Þegar pöntun er send frá vörugeymslu okkar færð þú senda staðfestingu með upplýsingum um hvernig á að fylgjast með sendingunni. Athugaðu að rekjanleiki er aðeins mögulegur á pöntunum sem sendar eru með Póstinum.
Ef afhendingu seinkar verulega eða í meira en 20 daga hefur þú heimild til að hætta við kaupin. Í slíku tilviki biðjum við þig hafa samband við okkur á netfangið: support@johntailor.is
4. Skilaréttur
Skilafrestur er 14 dagar frá þeim degi sem pöntunin barst til þín.
Þú getur hætt við pöntunina þína innan 14 daga frá móttöku pöntunar með því að senda okkur póst á support@johntailor.is
Skil á vörum með pósti.
Vinsamlegast sendu vörurnar sem þú vilt skila ásamt fylgiseðlinum (sem fylgdi pöntuninni) til JT Partners innan 30 daga frá þeim degi sem þú fékkst vörurnar á eftirfarandi heimilisfang:
JT Partners ehf.
Svölutjörn 11
260 Reykjanesbær
Við mælum með að vörurnar séu sendar með Póstinum og þú geymir sönnunargögn um afhendingu og sendingarnúmer þar til kaupverð hefur verið endurgreitt.
Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur.
5. Endurgreiðslur
Ef hætt er við pöntun innan 14 daga frá móttöku vörunnar fæst full endurgreiðsla.
JT Partners endurgreiðir einnig sendingarkostnað nema að viðskiptavinur hafi valið dýrari afhendingarmáta en ódýrasta afendingarmáta í boði.
Ef vörur, sem hætt hefur verið við, eru sendar til baka með pósti greiðir viðskiptavinur sendingu.
JT Partners mun endurgreiða þér eins fljótt og auðið er með sama greiðslumáta og þú notaðir við upphafleg viðskipti, nema þú hafir samið sérstaklega um það með öðrum hætti. Enginn aukakostnaður leggst á endurgreiðsluna vegna skila eða ef hætt er við af hálfu kaupin.
6. Ábyrgð
JT Partners áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu pöntunarinnar ef skýr og augljós verðvilla birtist á vefsíðunni (t.d. verð vörunnar virðist vera of hátt eða of lágt eða ef verð er gefið upp sem 0 kr). Í slíku tilviki skal JT Partners tilkynna þér strax um villuna og leiðrétta verð.
JT Partners leitast við að lýsa nákvæmlega vörum og myndum í netversluninni en það gætu verið minniháttar litabreytingar á milli mynda og raunverulegra vara vegna fjölda þátta eins og vafra sem er notaður eða litaskjástillinga. JT Partners er ekki ábyrgt fyrir mismunandi litum vegna fyrrnefndra þátta.